17.02.2022
Í kvöld keppir lið MÁ í 8-liða úrslitum FRÍS - Framhaldsskólaleikum Rafíþróttasamtaka Íslands.
Lesa meira
15.02.2022
Nemendur MÁ fengu góðan gest í heimsókn um daginn. Þorsteinn V. Einarsson kennari og kynjafræðingur hélt erindi um karlmennsku og jafnrétti. Kjarninn í fyrirlestrinum var hvernig og hvers vegna jákvæð karlmennska styður við jafnrétti og hvernig skaðleg karlmennska bitnar á strákum og körlum. Áherslan var á hvað við getum gert sem einstaklingar til að hafa jákvæð áhrif á líf okkar og samferðafólks út frá hugmyndum um karlmennsku.
Lesa meira
13.01.2022
Í dag, fimmtudaginn 13. janúar, hefjast leikar í FRÍS (Framhaldsskólaleikar Rafíþróttasamtaka Íslands) og eru þeir nú haldnir í annað sinn. Menntaskólinn á Ásbrú tekur að sjálfsögðu þátt eftir frábæran árangur í fyrra.
Lesa meira
12.01.2022
Menntaskólinn í Ásbrú er í fyrsta skipti þátttakandi í Gettu betur spurningakeppni framhaldsskólanna.
Lesa meira
18.12.2021
Í dag fór fram fyrsta útskrift Menntaskólans á Ásbrú. Menntaskólinn á Ásbrú hóf starfsemi haustið 2019 þegar fyrsti nemendahópurinn hóf nám á stúdentsbraut í tölvuleikjagerð og er því áætluð útskrift hópsins vorið 2022. Lovísa Gunnlaugsdóttir, 18 ára Keflavíkurmær, útskrifaðist hins vegar hálfu ári á undan áætlun og fær því heiðurinn á því að vera fyrsti útskriftarnemandi skólans.
Lesa meira
18.12.2021
Í dag, laugardaginn 18. desember, fór fram hátíðleg athöfn í húsnæði Keilis á Ásbrú í tilefni fyrstu útskriftar Menntaskólans á Ásbrú.
Lesa meira
16.12.2021
Ingigerður Sæmundsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Menntaskólans á Ásbrú og mun hún hefja störf 1. janúar næstkomandi.
Lesa meira
15.12.2021
Nýtt sölukerfi nemakorta hjá Stætó
Lesa meira
13.12.2021
Laugardaginn 18. desember næstkomandi fer fram fyrsta útskrift Menntaskólans á Ásbrú. Athöfnin fer fram í húsnæði Keilis á Ásbrú að Grænásbraut 910 kl. 14.00.
Lesa meira
10.12.2021
Menntaskólinn á Ásbrú óskar eftir að ráða kennara í tölvuleikjagerð í 50% starfshlutfall fyrir vorönn 2022.
Lesa meira