Fara í efni

Jafnlaunastefna

Keilir – miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs hefur mótað eftirfarandi jafnlaunastefnu með jafnréttisáætlun Keilis og jafnlaunastaðalinn ÍST 85:2012 til hliðsjónar.

Í jafnréttisáætlun Keilis kemur fram að „Öllum kynjum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir öll kyn. Skulu þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun ekki fela í sér kynjamismunun“.

Til þess að ná því markmiði mun Keilir:

  • Bregðast við óútskýrðum launamun ef hann kemur fram í launagreiningu með stöðugum umbótum og eftirliti.
  • Framkvæma launagreiningu a.m.k. einu sinni á ári þar sem á kerfisbundinn hátt eru borin saman jafnverðmæt störf með það að markmiði að kanna hvort um sé að ræða óútskýrðan mun á launum.
  • Gera reglulegt mat á hlítingu gagnvart lögum og reglum sem í gildi eru á hverjum tíma og hafa áhrif á jafnlaunakerfi og markmið okkar.
  • Innleiða vottað jafnlaunakerfi sem byggist á jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012, skjalfesta það og viðhalda með því að sinna stöðugu eftirliti með því.
  • Kynna starfsfólki jafnlaunastefnuna og hafa hana aðgengilega á innri og ytri vef fyrirtækisins.

Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á jafnlaunakerfinu og er það á hans ábyrgð að tryggja skjalfestingu, innleiðingu, viðhaldi og stöðugar umbætur jafnlaunamála.

Jafnlaunastefna þessi var samþykkt á fundi framkvæmdastjórnar 28.september 2021.

 

Senda ábendingu um efni síðu