Fara í efni

Fyrsta útskrift Menntaskólans á Ásbrú

Laugardaginn 18. desember næstkomandi fer fram fyrsta útskrift Menntaskólans á Ásbrú. Athöfnin fer fram í húsnæði Keilis á Ásbrú að Grænásbraut 910 kl. 14.00.

Menntaskólinn á Ásbrú hóf starfsemi haustið 2019 þegar fyrsti nemendahópurinn hóf nám á stúdentsbraut í tölvuleikjagerð. Stúdentsbrautin er skipulögð sem þriggja ára nám þaðan sem nemendur útskrifast með staðgóða þekkingu í ýmsu sem tengist tölvuleikjagerð og fleiri skapandi greinum. Námið byggir á hagnýtum verkefnum með sterkri tengingu við atvinnulífið þar sem lögð er áhersla á færni til framtíðar, nútíma kennsluhætti og vinnuaðstöðu í sérklassa.

Áhugi meðal ungs fólks á menntun til starfa í skapandi greinum er mikill og hefur ásókn í skólann verið mjög góð frá upphafi. Tölvuleikjagerð hefur vaxið mjög hratt á Íslandi undanfarin ár og hefur skortur verið á vel menntuðu starfsfólki í greininni. Menntaskólinn á Ásbrú hefur frá upphafi haft náin tengsl við fyrirtæki á þessu sviði og einnig við Samtök leikjaframleiðenda á Íslandi (IGI). Skólinn hefur fengið mikinn stuðning og ráðgjöf frá samstarfsfyrirtækjum í gegnum hin ýmsu samstarfsverkefni.

Þrátt fyrir að að stúdentsbrautin sé skipulögð sem þriggja ára nám er möguleiki fyrir hendi að taka námið á lengri eða styttri tíma, eins og á við í útskrift laugardagsins.