Fara í efni

Skrifstofa

Á skrifstofu Keilis er m.a. hægt að:

  • Panta áfangavottorð og námsferil
  • Panta staðfestingu um skólavist
  • Fá kvittanir fyrir skólagjöldum
  • Sækja nemendaskírteini

Starfsfólk kappkostar við að veita nemendum sem besta þjónustu.  Hægt er að senda póst á netfangið keilir@keilir.net til þess að sækja um áfangavottorð, staðfestingar og kvittanir.

Hafa samband

Opnunartími

Skrifstofa Keilis er opin sem hér segir:

  • Mánudag til fimmtudags: 08:30 - 12:00 og 13:00 - 15:00
  • Föstudaga: 08:30 - 12:00
  • Húsnæði Keilis er opið alla virka daga frá klukkan 08:30 - 16:00 og nemendur geta pantað aðstöðu til í að læra á opnunartíma með því að senda tölvupóst á netfangið keilir@keilir.net

Nemendaskírteini

Allir nemendur Keilis geta fengið nemendaskírteini sér að kostnaðarlausu á skrifstofu skólans. Nemandi sendir andlitsmynd á tolvudeild@keilir.net og óskar eftir skírteini, gefur upp nafn og kennitölu og í hvaða námi hann er.

Ábendingar og aðstoð

Er eitthvað bilað, vantar þig aðstoð, viltu koma með ábendingu, kvörtun, hrós? Keilir starfar á nokkrum stöðum og því getur verið erfitt að fylgjast með þegar eitthvað er bilað eða fer úrskeiðis. Jafnframt viljum við leggja okkur fram við að bæta þjónustuna og aðstöðuna. Við tökum því fagnandi að fá ábendingar frá nemendum um allt milli himins og jarðar.