Fara í efni

Inntökuskilyrði

Nemendur sækja um rafrænt á vef Menntamálastofnunar á tilteknu auglýstu tímabili. Allir umsækjendur eru boðaðir í inntökuviðtal við fulltrúa Menntaskólans á Ásbrú.

Til viðbótar við inntökuviðtalið er miðað við að umsækjandi hafi lokið grunnskólaprófi með hæfnieinkunn B í ensku, íslensku og stærðfræði - eða hafi lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.

Samkvæmt reglugerð nr. 1150/2008 um innritun í framhaldsskóla eiga umsækjendur undir 18 ára aldri rétt á að stunda nám í framhaldsskóla og hafa þannig forgang fram yfir eldri umsækjendur. Hæfni umsækjenda er metin út frá fyrrnefndum viðmiðum og býðst skólavist m.t.t. hæfnimats. Inntökufjöldi getur verið ólíkur milli anna.

Innritun í framhaldsskóla fyrir vorönn 2022

  • Innritun á vorönn fer fram á tímabilinu frá 1.nóvember til 30.nóvember 2021

Innritun í framhaldsskóla er rafræn, þ.e. sótt er um skólavist á netinu. Nemendur þurfa nettengda tölvu og hægt er að fá aðstoð við innritun í grunnskólum og framhaldsskólum sé þess óskað.

Hafa samband

Sækja um