Innritun í allt nám Menntaskólans á Ásbrú fer fram rafrænt.
Stúdentsbraut í tölvuleikjagerð
Nemendur sækja um rafrænt á vef Menntamálastofnunar á tilteknu auglýstu tímabili. Allir umsækjendur eru boðaðir í inntökuviðtal við fulltrúa Menntaskólans á Ásbrú.
Til viðbótar við inntökuviðtalið er miðað við að umsækjandi hafi lokið grunnskólaprófi með hæfnieinkunn B í ensku, íslensku og stærðfræði - eða hafi lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.
Samkvæmt reglugerð nr. 1150/2008 um innritun í framhaldsskóla eiga umsækjendur undir 18 ára aldri rétt á að stunda nám í framhaldsskóla og hafa þannig forgang fram yfir eldri umsækjendur. Hæfni umsækjenda er metin út frá fyrrnefndum viðmiðum og býðst skólavist m.t.t. hæfnimats. Inntökufjöldi getur verið ólíkur milli anna.
Innritun í framhaldsskóla fyrir vorönn 2022- Innritun á vorönn fer fram á tímabilinu frá 1.nóvember til 30.nóvember 2021
Fjarnámshlaðborð
Skráning í áfanga á hlaðborðinu fer fram á Innu. Nemendur hafa fjóra mánuði til að ljúka hverjum áfanga, frá því þeir skrá sig á Innu.Nánari upplýsingar veittar hjá fulltrúa Menntaskólans í síma 578 4000 eða með tölvupósti.