Fara í efni

Þróun og nýsköpun

Þróunarsvið heldur utan um þróunar- og nýsköpunarverkefni á vegum Keilis, auk utanumhalds innlendra og erlendra samstarfsverkefna. Við Keili starfar eitt þróunarsetur sem ber nafnið Vendinámssetur Keilis. Yfirlit yfir erlend samstarfsverkefni á vegum Keilis má nálgast hér.

Vendinámssetur Keilis

Vendinámssetrinu er ætlað að vera miðstöð fyrir nýjungar í þróun námsefnis, námsskipan og kennsluaðferða. Miðast verður við að efnið verði aðengilegt á íslensku og ensku.

Í gegnum setrið mun Keilir vinna að því að efla vendinám við skólann, ásamt því að þróa námsefni, námsskipan og kennsluaðferðir sem mögulegt verður að yfirfæra yfir á aðra skóla og/eða fyrirtæki, við umbætur í kennslu og þjálfun. Stefnt verður að því að búa til miðlæga þekkingarmiðstöð þar sem fræðsluefni verður gert aðgengilegt auk þess að veita öðrum skólum ráðgjöf við innleiðingu vendináms eftir því sem þörf er á.

Meðal afurða er uppbyggin aðstöðu fyrir hljóð- og myndbandsupptökur, ásamt grafískri miðlun kennsluefnis. Þá hafa verið settar saman handbækur fyrir kennara um fyrstu skref í vendinámi ásamt því hvernig hægt er að nota og nýta ýmiskonar tæknibúnað við gerð kennsluefnis. Verkefnið hefur einnig lagt áherslu á miðlun efnis til kennara og skólastjórnenda, auk þess sem boðið verður upp á verklega þjálfun og vinnubúðir haustið 2021.

Keilir hefur tekið saman upplýsingamyndbönd um vendinám en hefur auk þess unnið ítarlegt kynningarefni á ensku um innleiðingu vendináms í skólastarfi. Þá kemur Vendinámssetrið að gerð fjölbreyttra hlaðvarpsþátta um nám og kennslu í breyttum heimi menntunar, auk þess að taka þátt í fjölda innlendra og erlendra samstarfsverkefna.

Vendinámssetur Keilis er styrkt af Sóknaráætlun Suðurnesja.