04.09.2023
Þann 29. ágúst tóku 34 framúrskarandi námsmenn við styrkjum úr Afreks- og hvatningasjóði stúdenta Háskóla Íslands við athöfn í Hátíðasal skólans. Afreks- og hvatningarsjóðurinn hefur frá árinu 2008 veitt styrki til nýnema sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs eða aðfaranámi að háskólanámi og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og íþróttum. Sjóðurinn styrkir einnig nemendur sem hafa sýnt fádæma seiglu og þrautseigju og hafa, þrátt fyrir afar erfiðar aðstæður, staðið sig vel í námi.
Lesa meira
24.08.2023
Nám á Háskólabrú er komið á fullt skrið eftir sumarleyfi. Í fjarnámi voru 90 nýnemar sem hófu nám sitt með skólasetningu þann 17.ágúst og í kjölfarið fylgdu vinnulotur þann 18. og 19.ágúst. Staðnám hófst svo mánudaginn 21.ágúst en þar var góður 20 manna hópur nýnema sem mætti til leiks og hafa nú hafið ná í fyrstu lotu haustsins
Lesa meira
07.07.2023
Halldóra Ingibjörg Jensdóttir er 48 ára fjögurra barna móðir sem er búsett í Reykjanesbæ ásamt eiginmanni sínum, börnum og tveimur hundum. Hún byrjaði ung að eignast börn og alltaf verið í fullu starfi með stóru heimili og ekki gafst tími til að mennta sig fyrr en á fullorðinsárum. Hún sér þó ekki eftir neinu því hún öðlaðist góða reynslu af vinnumakaði og í lífinu almennt sem hún er þakklát fyrir.
Lesa meira
10.05.2023
Háskólabrú Keilis heldur rafrænan kynningarfund um námsframboð sitt þriðjudaginn 16. maí kl 17:00.
Lesa meira
14.04.2023
Undanfarin 16 ár hefur Háskóli Íslands úthlutað styrkjum úr afreks- og hvatningasjóði til nemenda sem ljúka námi á framhaldsskólastigi og stefna á nám í Háskóla Íslands. Nemendur sem hafa lokið námi á Háskólabrú hafa í gegnum tíðina verið í hópi þeirra sem hafa hlotið styrk úr sjóðinum.
Lesa meira
12.04.2023
Í dag 12.apríl kom hópur nemenda í heimsókn frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum sem stundar nám í Menntstoðum.
Lesa meira
14.03.2023
Margrét Andrea Larsdóttir er 35 ára þriggja barna móðir sem býr á Fáskrúðsfirði með fjölskyldu sinni. Margrét er slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá Slökkviliði Fjarðabyggðar sem staðsett er á Reyðarfirði. Einnig er hún í slökkviliðinu og sjúkraflutningum á Fáskrúðsfirði í hlutastarfi samhliða vinnu sinni á Reyðarfirði. Hún hóf nám hjá Keili í janúar 2022 og útskrifaðist núna í janúar 2023 ári síðar en ákvörðunin að fara í nám var ekki svo einföld að hennar sögn.
Lesa meira
23.02.2023
Opið er fyrir umsóknir á Háskólabrú fyrir haustönn 2023. Mikil aðsókn hefur verið í Háskólabrú síðustu ár og hvetjum við áhugasama til þess að senda inn umsókn tímalega. Nám á Háskólabrú hefur gefið fjölda fólks nýtt tækifæri til náms og hafa flestir útskrifaðir nemendur hafið háskólanám að náminu loknu, við góðan orðstír.
Lesa meira
23.01.2023
Ágústa Pétursdóttir, 31 árs Hafnfirðingur, kom sjálfri sér mikið á óvart þegar hún varð dúx Háskólabrúar á nýliðinni haustönn hjá Keili. Ágústa er í dag búsett í Mosfellsbæ ásamt manni sínum og syni. Fyrir utan að eyða tíma með strákunum sínum þá er hún að eigin sögn ,,hundanörd í húð og hár”.
Lesa meira
09.01.2023
Föstudaginn 13. janúar fer fram útskrift nemenda af félagsvísinda- og lagadeild, viðskipta- og hagfræðideild og verk- og raunvísindadeild í fjarnámi.
Lesa meira