Fara í efni

Um Háskólabrú

Háskólabrú Keilis býður upp á nám fyrir einstaklinga sem hafa ekki lokið stúdentsprófi en vilja stefna á háskólanám eða styrkja sig á vinnumarkaði. Keilir er eini skólinn sem býður upp á aðfaranám í samstarfi við Háskóla íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir Háskóla Íslands. 

Háskólabrú hefur undanfarin ár markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur. Nám á Háskólabrú hefur gefið fjölda fólks nýtt tækifæri til náms og hafa flestir útskrifaðir nemendur hafið háskólanám að náminu loknu, við góðan orðstír.

Fyrstu nemendur Háskólabrúar Keilis hófu nám haustið 2007 og starfar skólinn í samstarfi við Háskóla Íslands. Haustið 2008 skrifaði Keilir og Háskóli Íslands undir samning þess eðlis að próf á Háskólabrú skuli samkvæmt samningnum almennt teljast sambærilegt stúdentsprófi og veitir inngöngu í þær deildir sem vísa í svið innan Háskóla Íslands. Þá hafa margir útskrifaðir nemendur einnig sótt nám í öðrum háskólum hérlendis og erlendis en eftir þeirra inntökuskilyrðum hverju sinni.

Markmiðið með Háskólabrú er að nemendur okkar séu vel undirbúnir til að takast á við kröfuhart háskólanám. Stór hluti af gæðastarfi okkar er að fylgjast með gengi nemenda okkar í háskóla. Frá upphafi höfum við gert kannanir meðal útskrifaðra m.a hvernig nemendur telja sig vera undirbúna fyrir háskólanám. Flestir útskriftarnemendur okkar hefja háskólanám og um 85% þeirra telja sig vera vel undirbúna fyrir háskólanám. 

Nám á Háskólabrú Keilis

Hægt er að taka háskólabrú í staðnámifjarnámi, fjarnámi með vinnu og með undirbúningi. Deildir Háskólabrúar samsvara deildum háskólans en boðið er upp á félagsvísinda- og lagadeild, hugvísindadeild, viðskipta- og hagfræðideild ásamt verk- og raunvísindadeild. 

  • Á félagsvísinda- og lagadeild, viðskipta- og hagfræðideild og hugvísindadeild skiptist námið í tvær annir í fullu námi en fjórar í hálfu námi.
  • Á verk- og raunvísindadeild skiptist námið í þrjár annir í fullu námi (haust, sumar, vor) en í hálfu námi skiptist námið í fjórar annir. 

Umsækjendum er bent á að hafa samband við námsráðgjafa óski þeir eftir aðstoð við val á námsleið. Sömu kennsluskrár gilda fyrir fjarnám og staðnám. Fjarnám hefst annars vegar í janúar og hins vegar í ágúst og hægt er að vera í fullu fjarnámi eða í fjarnámi með vinnu. Staðnám hefst í ágúst ár hvert og tekur tvær annir á öllum deildum fyrir utan verk- og raunvísindadeild þar sem námið er skipulagt í þrjár annir.  

Hafa samband

Fjölmiðlar

Allar fyrirspurnir fjölmiðla skulu berast markaðs- og kynningarfulltrúa Keilis

Merki og annað almennt markaðsefni til notkunnar