04.12.2018
Enn er hægt að sækja um nám í Háskólabrú á vorönn 2019. Skólasetning verður fimmtudaginn 10. janúar og er hægt að stunda námið bæði með og án vinnu.
Lesa meira
20.08.2018
Selma Klara Gunnarsdóttir flutti ræðu útskriftarnema við brautskráningu Verk- og raunvísindadeildar Háskólabrúar Keilis þann 17. ágúst síðastliðinn. Sökum veikinda átti Selma erfiða skólagöngu í grunnskóla og taldi sig í kjölfarið trú um að hún gæti ekki menntað sig. Hún skráði sig hinsvegar í Menntastoðir 2016 og lauk nú tveimur árum seinna Háskólabrú Keilis. Hún mun hefja nám í líftækni við Háskólann á Akureyri í haust.
Lesa meira
17.08.2018
Keilir brautskráði sextán nemendur af Verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar við hátíðlega athöfn á Ásbrú föstudaginn 17. ágúst. Með útskriftinni hafa alls 166 nemendur lokið Háskólabrú á þessu ári.
Lesa meira
15.08.2018
Skólasetning nýnema í fjarnámi Háskólabrúar Keilis verður fimmtudaginn 16. ágúst og í staðnámi mánudaginn 20. ágúst í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ, en samtals munu um 150 nemendur hefja námið á haustönn 2018.
Lesa meira
26.07.2018
Í byrjun júlí höfðu borist á þriðja hundrað umsóknir í stað- og fjarnám Háskólabrúar Keilis fyrir haustið 2018 og er það sambærilegur fjöldi og á síðasta ári, en þá barst metfjöldi umsókna í námið. Ekkert lát virðist því vera á áhuga á aðfaranám fyrir háskóla um þessar mundir.
Lesa meira
12.06.2018
Enn er hægt að sækja um nám á haustönn 2018 í Háskólabrú Keilis. Boðið er upp á Háskólabrú í staðnámi og fjarnámi, bæði með og án vinnu, auk alþjóðlegrar Háskólabrúar sem kennd er á ensku.
Lesa meira
08.06.2018
Háskólabrú Keilis brautskráði 87 nemendur úr þremur deildum við hátíðlega athöfn á Ásbrú föstudaginn 8. júní síðastliðinn. Eftir útskriftina hafa yfir 150 nemendur Háskólabrúar lokið námi það sem af er ársins, en í ágúst bætist auk þess við útskritarhópur úr Verk- og raunvísindadeild skólans
Lesa meira
07.06.2018
Miðvikudaginn 6. júní heiðraði Menntavísindasvið Háskóla Íslands fimm kennara fyrir framúrskarandi störf. Valnefnd fór yfir hátt í eitt þúsund tilnefningar og umsagnir og var Gísli Hólmar Jóhannesson stærðfræðikennari á Háskólabrú Keilis einn þeirra kennara sem hlutu viðurkenningu í ár.
Lesa meira
02.06.2018
Annað árið í röð fjölgar umsóknum í Háskólabrú Keilis, en í byrjun júní höfðu borist umtalsvert fleiri umsóknir í námið en á sama tíma í fyrra. Aldrei áður hafa verið jafn margar umsóknir í byrjun júní.
Lesa meira
12.01.2018
Háskólabrú Keilis brautskráði samtals 64 nemendur úr öllum deildum og hafa þá samtals 1.597 nemendur lokið náminu frá árinu 2008.
Lesa meira