Fara í efni

Farmtækni - Nýtt endurmenntunarnámskeið fyrir atvinnubílstjóra

Á þessu námskeiði er farið í gegnum helstu atriði sem tengjast farmtækni. Að bílstjóri gangi af öryggi frá og festi mismunandi tegundir farms, þekki reglur um, notkun farm- og fylgiskjala sem krafist er í flutningum bæði innanlands sem og á milli landa.

Að því er stefnt að bílstjórinn:

  • Þekki þá krafta sem hafa áhrif á vörubifreið í akstri og hvernig farmur hefur áhrif á aksturseiginleika hennar.
  • Kunni að lesta bifreið og vagnlest af öryggi, sérstaklega m.t.t. dreifingu farms og útreikninga þar að lútandi.
  • Þekki og kunni að nota helstu tegundir festibúnaðar fyrir mismunandi farm.
  • ?Þekki ákvæði í lögum og reglum um vöruflutninga í atvinnuskyni, búnað vörubifreiða, nauðsynleg skjöl og leyfi, sem og skyldur bílstjóra.

Námskeiðið er kennt 18. nóvember kl. 09:00 - 16:00 í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ. Námskeiðsgjöld eru kr. 19.900.

Samkvæmt nýrri reglugerð verða atvinnubílstjórar (ökuréttindi í flokkum C1, C, D1 og D) að sækja endurmenntun á fimm ára fresti. Keilir hefur fengið viðurkenningu Samgöngustofu til að bjóða upp á endurmenntun bílstjóra til farþegaflutninga og vöruflutninga í atvinnuskyni og hefur boðið upp á námskeiðin frá haustinu 2017. Keilir hefur á undanförnum árum verið leiðandi aðili í innleiðingu nýrra kennsluhátta sem miða við þarfir fullorðinna nemenda. Námskeið Keilis til endurmenntunar atvinnubílstjóra eru lifandi og byggja á virkri þátttöku nemenda.

Upplýsingar frá Samgöngustofu

Bílstjóri sem ekur stórri bifreið í ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni skal sækja 35 kennslustunda endurmenntun á fimm ára fresti. Þeir bílstjórar sem fengið hafa réttindi sín fyrir 10. september 2013 þurfa að klára endurmenntun fyrir 10. september 2018. Hinir og reyndar allir sem endurnýja ökuskírteinið sitt með þessum flokkum eftir þann tíma þurfa að hafa klárað endurmenntun.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Samgöngustofu eða með því að hafa samband við verkefnisstjóra endurmenntunarnámskeiða Keilis. 

DAGSETNINGAR NÆSTU NÁMSKEIÐA OG SKRÁNING