Fara í efni

Námsgjöld

Menntaskólinn á Ásbrú býður upp á framsækið stúdentsnám í góðum tengslum við atvinnulífið sem veitir breiðan grunn að framhaldsnámi og fjölda atvinnutækifæra í kjölfarið. Þá býður skólinn einnig upp á sveigjanlega áfanga á Fjarnámshlaðborði sem henta t.d. vel þeim sem vantar örfáar feiningar upp á að standast inntökukröfur framhaldsnáms.

Stúdentsbraut í tölvuleikjagerð 

Námsgjöld eru innheimt fyrir hverja önn fyrir sig sérstaklega, þau miðast við staðgreiðslu og skulu vera að fullu greidd í upphafi hverrar annar samkvæmt útgefnum gjalddaga hverju sinni. Samhliða innheimtu námsgjalda eru innheimt félagsgjöld fyrir Nemendafélag Menntaskólans á Ásbrú. Nemandi getur ekki fengið afhent prófskírteini fyrr en uppgjör vegna námsgjalda hefur farið fram að fullu. Þeir nemendur sem ekki hafa greitt skólagjöldin sín þegar nám hefst geta átt von á að lokað verði á aðgang þeirra að kennslukerfi skólans án fyrirvara. Námsgjöld eru ekki endurgreidd. 

Námsgjöld veturinn 2021 - 2022 eru 70.500 krónur á önn.

Skoða stúdentsbraut í tölvuleikjagerð

Hafa samband

Verðskráin gildir frá og með september 2021. Allar upphæðir eru endurskoðaðar árlega miðað við þróun vísitalna og annarra þátta sem hafa áhrif á rekstur skólans. Skólinn áskilur sér rétt til fyrirvaralausra breytinga á verðskránni, ef tilefni er fyrir hendi t.d. vegna breytinga á kjarasamninga og annara utanaðkomandi gjalda og þátta sem geta haft áhrif á verðlagningu skólans. Tölur og dagsetningar settar fram með fyrirvara um villur.

Almenn verðskrá Keilis vegna vottorða, prófa o.fl.