Fara í efni

Farmflutningar - Valkjarnanámskeið

Keilir býður upp á valkjarnanámskeiðið Farmflutningar í röð endurmenntunarnámskeiða atvinnubílstjóra. Námskeiðið fer fram laugardaginn 12. maí, kl. 9 - 16 í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þátttökugjald er 19.900 kr.

Markmið farmflutninganámskeiðs

Bílstjóri gangi af öryggi frá og festi mismunandi tegundir farms. Bílstjóri þekki reglur um, notkun farm- og fylgiskjala sem krafist er í flutningum bæði innanlands sem og á milli landa. Að því er stefnt að bílstjórinn: 

  • þekki þá krafta sem hafa áhrif á vörubifreið í akstri og hvernig farmur hefur áhrif á aksturseiginleika hennar
  • kunni að lesta bifreið og vagnlest af öryggi, sérstaklega m.t.t. dreifingu farms og útreikninga þar að lútandi.
  • þekki og kunni að nota helstu tegundir festibúnaðar fyrir mismunandi farm
  • þekki ákvæði í lögum og reglum um vöruflutninga í atvinnuskyni, búnað vörubifreiða, nauðsynleg skjöl og leyfi, sem og skyldur bílstjóra.

Endurmenntun atvinnubílstjóra

Þeir atvinnubílstjórar sem tóku prófið 2013 eða seinna þurfa að taka annað þessara námskeiða fyrir 10. september næstkomandi ef þeir ætla að halda sínu atvinnuréttindum. Ef bílstjóri vill taka bæði þessi námskeið þá gildir annað sem fimmta valnámskeiðið
 
Samkvæmt nýrri reglugerð verða atvinnubílstjórar (ökuréttindi í flokkum C1, C, D1 og D) að sækja endurmenntun á fimm ára fresti. Keilir hefur fengið viðurkenningu Samgöngustofu til að bjóða upp á endurmenntun bílstjóra til farþegaflutninga og vöruflutninga í atvinnuskyni og býður upp á kjarnanámskeið frá og með haustinu 2016.
 
Nánari upplýsingar veitir Margrét Hanna verkefnastjóri hjá Keili. Upplýsingar í síma 578 4079.