Fara í efni

Útivist og umhverfi - Námskeið fyrir ungt fólk

Námskeiðið er ætlað ungu fólki á aldrinum 13 - 16 ára sem hafa áhuga á útivist, afþreyingarferðamennsku og ferðalögum. Boðið er upp á námskeiðið án endurgjalds.

Á námskeiðinu verður farið yfir grunntækni í jaðaríþróttum og útivist, svo sem kajakróðri, klettaklifri og jöklagöngum. Einnig verða kennd grunnatriði í útivist, svo sem klæðnaður og næring í gönguferðum, rötun með korti og áttavita, ásamt grunni í skyndihjálp. 

Um er að ræða skemmtilegt og nýstárlegt námskeið, þar sem þátttakendur yfirgefa þægindaramma heimilisins og eyða tímanum þess í stað umlukin náttúrunni þar sem þau læra nýja færni og þekkingu í útivist, ásamt því að skemmta sér og upplifa ný ævintýri með jafnöldrum sínum.   

Athygli skal vakin á því að námskeiðið höfðar jafn vel til stúlkna sem drengja.

Athugið að stór hluti námskeiðisins fer fram á vettvangi og þurfa þátttakendur að eiga góða gönguskó og útivistarföt. Keilir mun sjá um allan sérhæfðan útivistarbúnað sem og ferðir. 

Þess ber að geta að námskeiðið veitir engin réttindi en allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal fyrir að hafa lokið námskeiðinu þar sem fram kemur lýsing á innihaldi þess. 

Skráning á námskeiðið


 Námskeiðið í hnotskkurn

  • Lengd: 12 virkir dagar.
  • Dagsetning: 6. - 21. ágúst (kennt dagana 6. - 9. ágúst, 12. - 16. ágúst og 19. - 21. ágúst).
  • Tímasetning: 
  • Aldur: Námskeiðið er fyrir 13 - 16 ára ungmenni.
  • Staðsetning: Námskeiðið fer fram í fjölbreyttu landslagi á Reykjanesi og suðurlandi ásamt fræðslu sem fer fram í húsakynnum Keilis á Ásbrú.
  • Tungumál: Kennt verður á íslensku og ensku
  • Búnaður: Þátttakendur verða að eiga góða gönguskó og útivistarföt. Ítarlegur búnaðarlisti er sendur á skráða þátttakendur. Keilir mun sjá um allan sérhæfðan búnað sem og ferðir. 
  • Tengiliður: Arnar Hafsteinsson (arnar@keilir.net), forstöðumaður Íþróttakaademíu Keilis.

Kennarar og leiðbeinendur

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru menntaðir leiðsögumenn og þaulvanir útivist við krefjandi aðstæðum á Íslandi.

  • Gabriel Côté-Valiquette er verkefnastjóri og kennari við leiðsögunáms í ævintýraferðamennsku hjá Keili. Hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Thompson Rivers háskólanum í Kanada (TRU) og hefur haldið utan um námið á Íslandi undanfarin fjögur ár. Hann er þaulvanur útvist á Íslandi.
  • Andrea Geirsdóttir er útskrifaður leiðsögumaður úr ævintýraleiðsögunámi frá Keili & TRU
  • Guðmann Unnsteinsson er útskrifaður leiðsögumaður úr ævintýraleiðsögunámi frá Keili & TRU
  • Beda Mörgeli er útskrifaður leiðsögumaður úr ævintýraleiðsögunámi frá Keili & TRU

Mikil áhersla verður lögð á öryggi og öryggisbúnað, faglegan og góðan undirbúning fyrir útvisit og útiveru. Leiðbeinendur eru einnig með þjálfun í skyndihjálp og viðbrögðum við óvæntar aðstæður í óbyggðum.   

Byggt á viðamikilli reynslu í ævintýraferðamennsku

Keilir hefur boðið upp á leiðsögunám í ævintýraferðamennsku á háskólastigi síðan árið 2013. Námið er kennt í samstarfi við Thompson Rivers háskólann í Kanada sem er viðurkenndur sem einn af leiðandi skólum í ævintýraferðamennsku á heimsvísu.

Árlega leggja um tuttugu nemendur frá mörgum mismunandi löndum stund á námið.  Flestir hafa farið í vinnu annað hvort hérlendis eða erlendis, meðal annars hjá leiðandi fyrirtækjum í afþreyingarferðamennsku og nokkrir hafa stofnað eigin rekstur í ferðamennsku.

Markmið skólans hefur verið að auka færni og þekking í flestum geirum ævintýraferðamennsku, meðal annars með því að tryggja öryggi leiðsögu- og ferðamanna í óbyggðum ásamt því að auka gæði og þjónustu í greininni. Að náminu koma bæði innlendir og erlendir kennarar sem hafa allir öðlast alþjóðleg réttindi og mikla færni á sínu sviði, svo sem í fjallamennsku eða kajak- og flúðasiglingum.  

Um er að ræða 60 ECTS, átta mánaða nám á háskólastigi, sem hentar vel þeim sem hafa mikinn áhuga á ferðamennsku og útivist við krefjandi aðstæður. Útskrifaðir nemendur hafa möguleika á að vinna á óhefðbundnum og fjölbreyttum starfsvettvangi með góðum starfsmöguleikum víða um heim í ört vaxandi grein ævintýraferðamennsku.   

Skráning á námskeiðið