Fara í efni

Hönnun og virkni aksturshliða

Jóhann Torfi Hafsteinsson
Jóhann Torfi Hafsteinsson

Dagana 26. - 29. maí fara fram varnir lokaverkefna hjá útskriftarnemum í tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis. Kynningarnar fara fram í aðalbyggingu Keilis og eru öllum opnar nema annað sé tekið fram.

  • Heiti verkefnis: Hraðhlið. Ný nálgun á hönnun og virkni aksturshliða.
  • Nemandi: Jóhann Torfi Hafsteinsson
  • Tímasetning: Fimmtudagur 28. maí, kl. 9:15

Lýsing: Hraðhlið eru aksturshlið sem notuð eru til að loka afgirtum svæðum. Hliðin eru uppsett af tveimur einingum sem standa á móti hvor annarri. Hver eining samanstendur af tveimur grindum sem falla að hvor annari við opnun, með þessu móti er hægt að opna á fjórum til átta sekúndum. Hliðin sem eru í notkun nú til dags eru drifin af mótor og gír, en vegna umfangs og staðsetnigar á þessum drifbúnaði er viðhald hliðanna erfitt. Verkefnið gekk út á að hanna hlið í samstarfi við Vélver ehf með því að nota rafmagnstjakka til að leysa af hólmi þennan drifbúnað og einnig útfæra stýringu fyrir tjakkinn og hliðið í heild. Rafmagnstjakkarnir koma í mismunandi stærðum og eru miskraftmiklir, tjakkurinn fyrir þetta hliðið er með 5kN kraft og færsluhraða upp á 23 mm/s.

Til að gera færslu hliðsins sem léttasta fyrir þennan hraða eru allir hreyfanlegir hlutir útfærðir með kúlulegum, hliðið sjálft er úr heitgalvanhúðuðum stálprófílum til að standast íslenskar aðstæðu og séð er til þess að burður í járnavirki sé nægur. Stýringar fyrir hliðið eru í gegn um iðntölvu, tölvan er staðsett í annari hliðeiningunni en stjórnar tjökkum og skynjurum fyrir báðar einingarnar. Út frá þessari hönnun er grundvöllur fyrir því að smíða prufugerð af hliði sem drifið er með tjökkum.