Fara í efni

Flugtengd störf - Námskeið fyrir ungt fólk - Fullbókað

Fullbókað er á námskeiðið

Námskeiðið er ætlað ungu fólki á aldrinum 13 - 16 ára sem vilja kynnast námi, starfi og tækifærum á öllu því sem flugrekstur hefur upp á að bjóða, allt frá atvinnuflugi yfir í flugtengd störf á jörðu niðri. 

Á námskeiðinu verður farið yfir allt það sem snýr að flugrekstri í víðu samhengi. Þátttakendur fá meðal annars að kynnast flugnámi frá upphafi til enda, tegundaáritun flugmanna, vinnu í flughermum, námi og starfi flugvirkja, starfi flugþjóna, afgreiðslufólks á flugvöllum og flugumsjónarmanna, flugvallarstarfsmanna, flugumferðarstjóra, tækni og rekstrarhlið flugrekstrar og öðrum tengdum starfsstéttum bæði beinum og afleiddum flugstörfum.

Um er að ræða skemmtilegt námskeið sem er ætlað að vekja áhuga ungs fólks á flugtengdum störfum og námi þeim tengdum. Markmiðið er að þátttakendur fái dýpri sýn á störf og nám þeirra starfsstétta sem sem starfa í flugtengdum greinum og þau fjölbreyttu tækifæri sem flugtengdar greinar geta skapað bæði hérlendis og erlendis. 

Athygli skal vakin á því að námskeiðið höfðar jafn vel til stúlkna sem drengja.

Námskeiðið fer fram í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ. Auk þess verður farið í vettvangsferðir og heimsóknir til fyrirtækja.

Þess ber að geta að námskeiðið veitir engin réttindi, en allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal fyrir að hafa lokið námskeiðinu þar sem fram kemur ítarleg lýsing á innihaldi þess. 


 Námskeiðið í hnotskkurn

  • Lengd: 3 virkir dagar.
  • Dagsetning: 29. - 31. júlí.
  • Tímasetning: Kl. 9 - 14:30 alla daga
  • Aldur: Námskeiðið er fyrir 13 - 16 ára ungmenni.
  • Staðsetning: Námskeiðið fer fram í Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ, auk þess sem vettvangsferðir og heimsóknir verða farnar út fyrir svæðið.
  • Tungumál: Kennt verður á íslensku
  • Ferðir: Keilir mun sjá um skipulagningu og framkvæmd heimsókna og vettvangsferða. 
  • Tengiliður: Sveinn Björgvinsson (svenni@keilir.net), rekstrarstjóri verklegrar deildar Flugakademíu Keilis.

Kennarar og leiðbeinendur

Umsjónarmaður námskeiðsins er Óskar Pétur Sævarsson, flugkennari hjá Keili. Óskar Pétur er atvinnuflugmaður og hefur meðal annars starfað sem flugstjóri hjá RyanAir og sem flugmaður hjá Icelandair. 

Byggir á áratuga reynslu Keilis í flugtengdum námsbrautum

Flugakademía Keilis - Flugskóli Íslands er einn stærsti flugskóli á Norðurlöndunum með yfir tuttugu kennsluvélar, þrjá flugherma og á þriðja hundrað nemendur í atvinnuflugnámi, auk einkaflugmannsnáms. Skólinn hefur á undanförnum árum einnig boðið upp á fjölbreytt framboð flugtengdra námsbrauta svo sem flugvirkjanám, flugumferðarstjórn, flugþjónustunám og flugrekstrarnám.  

Skólinn leggur áherslu á sveigjanlega kennsluhætti, tæknivæddar kennsluvélar og þægilegt námsumhverfi sem aðlagar sig að þörfum nútíma nemenda. Sérstaða skólans í framsæknum kennsluháttum, sem og krefjandi og fjölbreyttar aðstæður til verklegrar þjálfunar flugmanna, gera Ísland að einu besta landi til flugnáms í heiminum.