Fara í efni

Umsókn í fjarnám Háskólabrúar með og án vinnu

Enn er hægt að sækja um nám í Háskólabrú á vorönn 2019. Skólasetning verður fimmtudaginn 10. janúar og er hægt að stunda námið bæði með og án vinnu.

Boðið er upp á aðfaranám að háskólanámi í fjarnámi til eins eða tveggja ára, sem hentar vel þeim sem vilja taka Háskólabrú með vinnu eða taka aðfaranámið á lengri tíma.

Háskólabrú Keilis er eftirsóttasta frumgreinanám á Íslandi og hafa nú yfir 1.700 einstaklingar lokið náminu. Af þeim hafa lang flestir haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis. Háskólabrú Keilis gildir til inngöngu í allar deildir Háskóla Íslands, sem og í flestar deildir háskóla bæði hérlendis og erlendis.