Fara í efni

Innritun í MÁ fyrir haustönn 2022

Innritun framhaldsskóla er með nokkuð breyttu sniði miðað við fyrri ár og er ekki forinnritunartímabil eins og hefur verið. Þess í stað er tímabil innritunar 10. bekkinga lengt í 6 vikur frá 25. apríl til 10. júní og innritun eldri nemenda var frá 15. mars til 22. apríl.

Sótt er um námið á vefsíðunni Menntagátt og vakin er athygli á því að þegar skóli er valinn þarf að velja “Keilir – Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs” og undir braut er valið “MÁ – Tölvuleikjagerð”.

Menntaskólinn á Ásbrú býður upp á stúdentsbraut í tölvuleikjagerð og er það eina nám sinnar tegundar á landinu á framhaldsskólastigi. Námið byggir á hagnýtum verkefnum með sterkri tengingu við atvinnulífið þar sem lögð er áhersla á færni til framtíðar, nútíma kennsluhætti og vinnuaðstöðu í sérklassa.

Markmið skólans með námi í tölvuleikjagerð er að svara bæði ákalli atvinnulífsins eftir vel menntuðu og sérhæfðu starfsfólki og áhuga ungs fólks á menntun til starfa í skapandi greinum.

Nám á stúdentsbraut í tölvuleikjagerð veitir breiðan grunn til framhaldsnáms á háskólastigi, með færni til framtíðar að leiðarljósi og gefst nemendum kostur á að leggja sínar eigin áherslur með valgreinum. Öflugir námsráðgjafar eru nemendum jafnframt innan handar og leiðbeina þeim allan námsferilinn.

Nánari upplýsingar um innritun í námið

Allir umsækjendur eru boðaðir í inntökuviðtal við fulltrúa Menntaskólans á Ásbrú. Til viðbótar við inntökuviðtalið er miðað við að umsækjandi hafi lokið grunnskólaprófi með hæfnieinkunn B í ensku, íslensku og stærðfræði - eða hafi lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum. Samkvæmt reglugerð nr. 1150/2008 um innritun í framhaldsskóla eiga umsækjendur undir 18 ára aldri rétt á að stunda nám í framhaldsskóla og hafa þannig forgang fram yfir eldri umsækjendur. Hæfni umsækjenda er metin út frá fyrrnefndum viðmiðum og býðst skólavist m.t.t. hæfnimats. Inntökufjöldi getur verið ólíkur milli anna.

Stúdentsbraut í tölvuleikjagerð

Sækja um