Farið er yfir þrjú meginatriði áhættumats, þ.e. skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði, áhættumat (greining og mat) og áætlun um heilsuvernd (úrbætur).
Kennd er einföld og markviss aðferð „sex skref við gerð áhættumats“ sem byggist á notkun vinnuumhverfisvísa/gátlista.
Uppbygging
Námskeið Vinnuverndarskóla Íslands byggjast upp á vendinámi. Þegar nemendur skrá sig á námskeiðið fá þeir senda fyrirlestra og lesefni sem þeir kynna sér áður en þeir koma í kennslustofu/fjarnám. Þar byrjar kennari á því að fara stuttlega yfir aðalatriði efnisins og svo eru unnin hópverkefni í gerð áhættumats.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er fyrir starfsmenn allra vinnustaða sem hafa hug á að gera áhættumat og þá sem hafa áhuga á að kynna sér gerð áhættumats á vinnustöðum.
Ávinningur
Þátttakendur öðlast aukna þekkingu á vinnuverndarmálum og eiga auðvelt með að gera áhættumat á vinnustaðnum sínum eftir námskeiðið.
Lengd
Undirbúningur heima eða á vinnustað og 2 klst. í fjarfundi.
Dagsetningar
Námskeiðið er haldið reglulega í gegnum fjarfundarbúnað. Skráðu þig á póstlistann og fáðu tilkynningar þegar nýjum námskeiðum er bætt við. Næstu námskeið eru sem hér segir:
- Fimmtudaginn 2. desember kl. 13-16 í fjarnámi
Verð og nánari upplýsingar
Námskeiðið kostar 20.900 kr. Innifalin eru öll námsgögn, aðgangur að kennslukerfi og fyrirlestrum, ásamt vinnu í kennslustofu.
Nánari upplýsingar veitir Bjartmar Steinn, verkefnastjóri Vinnuverndarskóla Íslands. Vinsamlegast smellið á hlekkinn hér fyrir neðan til að skrá þátttakendur á námskeiðið. Áður en námskeiðið hefst verður opnað fyrir aðgang þátttakenda að kennslukerfi og fyrirlestrum á netinu, og er ætlast til að þátttakendur hafi kynnt sér efnið áður en farið verður í kennslustund.
Vinsamlegast smellið á hlekkinn hér fyrir neðan til að skrá þátttakendur á námskeiðið. Áður en námskeiðið hefst verður opnað fyrir aðgang þátttakenda að kennslukerfi og fyrirlestrum á netinu, og er ætlast til að þátttakendur hafi kynnt sér efnið áður en kennsla hefst