Heilsuakademían býður upp á fjölbreytt nám sem tengist heilsu og heilsueflingu.
ÍAK Einkaþjálfun
- Boðið hefur verið upp á nám í einkaþjálfun allt frá stofnun Keilis árið 2007. Námið hefur notið mikilla vinsælda frá upphafi og er nú orðið viðurkennt starfsnám á þriðja hæfniþrepi samkvæmt viðmiðum mennta- og barnamálaráðuneytis. Smelltu hér til að sjá meira um ÍAK einkaþjálfaranámið í Keili.
ÍAK Styrktarþjálfun
- Nám í styrktarþjálfun íþróttafólks hefur verið í boði frá árinu 2015 og hefur náð að festa sig í sessi sem valmöguleiki fyrir þá sem hafa áhuga fyrir þjálfun innan íþróttageirans. Sjá nánar um ÍAK styrktarþjálfaranámið hér.
Fótaaðgerðafræði
- Nám í fótaaðgerðfræði var tekið upp árið 2017 og er viðurkennt starfsnám á þriðja hæfniþrepi samkvæmt viðmiðum mennta- og barnamálaráðuneytis. Fótaðgerðafræðingur er lögverndað starfsheiti og veitir Embætti landlæknis útskrifuðum nemendum starfsleyfi. Sjá nánar um nám í fótaaðgerðafræðum hér.
Inntökupróf.is
- Undirbúningsnámskeið fyrir Inntökupróf Læknadeildar Háskóla Íslands færðist yfir til Keilis árið 2018 eftir að hafa verið starfrækt frá árinu 2003. Námskeiðið hefur notið mikilla vinsælda meðal þeirra sem hyggja á nám í læknisfræði eða sjúkraþjálfunarfræði og hefur hefur nemendafjöldi talið nokkur hundruð á hverju ári. Smelltu hér til að skoða inntökupróf.is nánar.
Verið velkomin í nám við Heilsuakademíu Keilis.