Fara í efni

Vinnuvernd 101

Námskeiðið Vinnuvernd 101 fjallar um grundvallaratriði í starfsumhverfi og vinnuskipulagi til að stuðla að öryggi og vellíðan starfsfólks. Námið er einnig í boði á ensku.

Námskeiðið er hugsað fyrir allt starfsfólk vinnustaða til að allir hafi breiða almenna þekkingu á vinnuvernd og öryggsimálum. Fjallað verður um það sem lög og reglugerðir segja að allir vinnustaðir verði að uppfylla.

Á námskeiðinu verður farið yfir það sem skiptir mestu máli á stuttan og hnitmiðaðan máta, m.a. verður fjallað um:

  • Vinnuverndarstarf sem þarf að fara fram á öllum vinnustöðum
  • Skipan og hlutverk öryggisnefnda, öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða
  • Skipulag og kröfur varðandi áhættumat starfa
  • Hvaða vinnuslys á að skrá og tilkynna
  • Helstu forvarnir vegna vinnuslysa
  • Sálfélagslegt áhættumat, stefnu og viðbragðsáætlun vegna eineltis og áreitni
  • Líkamlegt álag, hávaða, loftræstingu og meðferð hættulegra efna

Þátttakendur fá send námsgögn í tölvupósti, hlekki á þrjá bæklinga sem þeir lesa og 6 fyrirlestra, u.þ.b. 40 mín. samtals sem þeir horfa á. Að lokum taka þátttakendur stutt gagnvirkt krossapróf úr efninu.

Nánari upplýsingar og skráning

Þar sem námskeiðið er kennt í fjarnámi er hægt að hefja nám hvenær sem er og vinna á sínum hraða.

Verð fyrir einstakling er 11.900 kr. en námskeiðið er fyrst og fremst hugsað fyrir hópa frá sama fyrirtæki. Boðið er upp á hópaafslætti.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kjerúlf, forstöðumaður Vinnuverndarskóla Íslands. Námskeiðið er sett upp fyrir hvert fyrirtæki fyrir sig eftir frekara samkomulagi.

Skráning á námskeið