Fara í efni

Vinnuverndarnámskeið fyrir 13-14 ára börn í vinnuskólum

Á námskeiðinu er farið yfir hvað 13-14 ára börn mega vinna við hjá vinnuskólum. Helstu málaflokkar vinnuverndarinnar eru teknir fyrir með sérstaka áherslu á það sem þessi hópur vinnur við s.s. sópa, raka, tína rusl, reita arfa, mála, garðvinnu o.s.frv. Námskeiðið skiptist í 7 kafla og ítarefni:

  1.  Kynning
  2. Vinnuverndarstarf og öryggismál
  3. Slysavarnir
  4. Persónuhlífar
  5. Líkamsbeiting
  6. Hættuleg efni
  7. Að líða vel í vinnunni

           Ítarefni fyrir mjög áhugasama nemendur og foreldra

Uppbygging

Námskeiðið fer fram í fjarnámi en nemendur geta tekið þátt stafrænt eða saman í hóp eftir því hvað hentar hverju sinni. Námsefnið er byggt á stuttum fyrirlestrum, eftir hvern kafla svara nemendur nokkrum spurningum sem þarf að svara rétt til að halda áfram.

Hægt er að skoða námsefnið og taka prófin eins oft og til þarf til þess að ná fullum skilningi. Enginn fær nákvæmlega sama prófið tvisvar þar sem spurningar eru valdar af handahófi úr spurningabanka til þess að tryggja að niðurstöður endurspegli þekkingu.

Námsefnið er myndrænt og notast er við myndbönd af NAPO sem er teiknimyndapersóna gerð af vinnuverndarstofnun Evrópu. Vinnuskólar og flokkstjórar eru hvattir til þess að nota myndirnar um NAPO í sínu fræðslustarfi.

Í námsefninu eru þrír stuttir tölvuleikir sem fjalla um vinnuverndarmál, nemendur fá aðgang að leikjunum eftir ákveðna áfanga í náminu. Tölvuleikirnir eru lokaverkefni fyrsta árs nema á stúdentsbraut í tölvuleikjagerð við Menntaskólann á Ásbrú. 

Í lok námskeiðsins er miðað við að þátttakendur hittist og búi til samskiptareglur fyrir sinn vinnustað í sumar.

Hvað tekur námskeiðið langan tíma?

Hver og einn fer í gegnum námsefnið á eigin hraða en gera má ráð fyrir að það taki um 1 klst. að kynna sér allt efni námskeiðsins.

Hvenær byrjar námskeiðið?

Vinnuskólar stjórna því hvenær námskeið hefst. Við upphaf námskeiðs fá nemendur sendar leiðbeiningar og hlekk á námsefnið og geta hafist handa þegar þeir vilja.

Skráning, verð og nánari upplýsingar

Námskeiðið er ætlað vinnuskólum sveitarfélaga og stærri fyrirtækja. Verð ræðst af fjölda þátttakenda. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kjerúlf, forstöðumaður Vinnuverndarskóla Íslands.

Hafa samband varðandi námskeið