Fara í efni

Útskrift leiðsögunemenda

Mynd: Oddgeir Karlsson
Mynd: Oddgeir Karlsson
Íþróttaakademía Keilis og Thompson Rivers University í Kanada brautskráðu 18 nemendur úr leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku við hátíðlega athöfn á Ásbrú föstudaginn 9. júní. Sharman Learie, umsjónarmaður TRU Adventure Studies, flutti ávarp og Erik Stevensson hlaut viðurkenningu fyrir bestan námsárangur með 8,95 í meðaleinkunn. Fékk hann gjöf frá GG sjósport.
 
Leiðsögunám í ævintýraferðamennsku vinsælt hjá íslenskum og erlendum nemendum
 
Námið hefur vakið athygli bæði meðal íslenskra og erlendra nemenda og hafa samtals 63 nemendur útskrifast á fjórum árum meðal annars frá Kanada, Noregi og Spáni, auk Íslands. Næsta haust bætast enn fleiri þjóðir í þennan hóp, þar sem meðal annars tveir nemendur frá Grænlandi og einn frá Chile munu hefja nám við skólann.
 
Boðið er upp á námið í nánu samstarfi við TRU í Kanada og útskrifast nemendur með alþjóðlega viðurkennt skírteini frá þeim (Adventure Sport Certificate). TRU er einn virtasti háskóli í heimi sem býður nám í ævintýraleiðsögn, en meðal útskrifaðra nemenda þeirra eru nokkrir íslenskir leiðsögumenn. Námið er grunnur að helstu þáttum ævintýraferðamennsku og hentar þeim sem viljak ynnast starfi ævintýraleiðsögumannsins, bæta við þekkingu sína á ævintýraferðamennsku eða skoða möguleikann á að gera ævintýraleiðsögn að starfsframa. Þá hafa nemdur möguleika á að meta einingar námsins í framhaldsnám innan TRU á sviði ævintýraferðamennsku. Nemendur sem hyggja á áframhaldandi nám í ævintýraferðamennsku innan TRU, geta farið beint inn í eftirfarandi nám: Adventure Guide Diploma, Adventure Management Diploma eða í fullt nám til BS gráðu í Adventure of Tourism Management.
 
Myndir frá útskrift Keilis 9. júní 2017 (ljósmyndari: Oddgeir Karlsson)