Fara í efni

Keilir brautskráir 18 leiðsögumenn í ævintýraferðamennsku

Útskriftarhópur leiðsögumanna í ævintýraferðamennsku 2016, ásamt Arnari Hafsteinssyni og Ross Clouti…
Útskriftarhópur leiðsögumanna í ævintýraferðamennsku 2016, ásamt Arnari Hafsteinssyni og Ross Cloutier
Keilir brautskráði 18 leiðsögumenn í ævintýraferðamennsku við hátíðlega athöfn í Andrews Theater á Ásbrú þann 10. júní. Námið er á vegum Keilis og Thompson Rivers University í Kanada og var þetta þriðji hópurinn sem lýkur náminu. Arnar Hafsteinsson, forstöðumaður Íþróttaakademíu Keilis, og Ross Cloutier yfirmaður námsins hjá TRU flutu ávarp, auk þess sem Fífa Lísa Óskarsdóttir flutti ræðu útskriftarnema. Dúx var Unnur Ósk Unnsteinsdóttir með 8,56 í meðaleinkunn og fékk hún gjöf frá GG sjósport fyrir námsárangur.
 
Aukin ásókn er meðal erlendra nemenda í leiðsögunámið og stefnir í að um helmingur þeirra 24 nemenda sem hefja nám í haust komi erlendis frá. Opið er fyrir umsóknir í námið til 13. júní.