Smelltu hér fyrir námsframboð Vinnuverndarskóla Íslands
Skólinn hóf starfsemi í lok ársins 2019 og hefur verið í stöðugri þróun síðan. Skólinn stefnir að því að nýta ávallt nýjustu tækni og kennsluaðferðir til að hámarka afköst og nýtni. Sem dæmi þar um má nefna vendinámsfyrirkomulag þar sem bókleg kennsla fer fyrst og fremst í gegnum netið en nemendur mæta svo í staðlotur í verklega vinnu og námsmat.
Byrjaðu nám hvenær sem er og stundaðu á eigin hraða
Á opnum fjarnámskeiðum Vinnuverndarskóla Íslands geta nemendur skráð sig og hafið nám samdægurs. Allt efni er aðgengilegt um leið og hægt er að skoða það eins oft og hver og einn þarf. Námsmat er framkvæmt með stuttum krossaprófum sem ljúka þarf áður en haldið er áfram í næsta hluta námskeiðsins.
Námskeið með vendinámsfyrirkomulagi
Nemendur mæta undirbúnir í kennslustofu á námskeið með staðlotu. Kennari fer stuttlega yfir aðalatriði kennsluefnis og í framhaldi eru unnin einstaklings- og hópverkefni. Lífleg skoðanaskipti og fróðlegar samræður eiga sér gjarnan stað. Staðlotur eru haldnar í húsnæði Keilis á Ásbrú Reykjanesbæ.