Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í Háskólabrú

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í fjarnám Háskólabrúar sem hefst í janúar 2014.

Á Háskólabrú er boðið upp á nám fyrir einstaklinga sem ekki hafa lokið stúdentsprófi. Að loknu námi uppfylla nemendur inntökuskilyrði í háskóla og telst námið sambærilegt stúdentsprófi samkvæmt samningi Keilis og Háskóla Íslands. Markmiðið með náminu er að veita nemendum góðan undirbúning fyrir krefjandi háskólanám.

Nánari upplýsingar um fjarnám í Háskólabrú og umsókn um nám má finna hér.