Fara í efni

Upphaf skólaárs Háskólabrúar Keilis

Staðnám í Háskólabrú Keilis hefst mánudaginn 25. ágúst kl. 10:00 í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ og erum við full tilhlökkunar að hefja viðburðaríkt skólaár.

Í fyrstu vikunni er farið yfir skipulag skólans, námsins og hópnum hrist saman. Kennarar kynna sína námsgrein, kennsluáætlanir og vinnulag. Kynning verður á bókasafninu og meðferð upplýsinga, einnig mun námsráðgjafi kynna þá þjónustu sem er í boði.

Mikilvægt er að allir mæti með tölvur sínar með sér þar sem tölvudeildin mun fara yfir helstu atriði varðandi notkun tölva hér við skólann. Þá verður nemendum veitt kennsla og aðgangur á Moodle, kennslukerfi Keilis. Þessi vika hefur reynst nemendum dýrmæt í reynslubankann og góð byrjun á krefjandi og skemmtilegu námi.

Nánari upplýsingar um upphaf skólaárs Háskólabrúar Keilis má nálgast hér.