Fara í efni

Háskólabrú með vinnu

Hefur þú alltaf stefnt á háskólanám en hefur ekki lokið framhaldsskóla? Keilir býður nú upp á aðfaranám að háskólanámi í fjarnámi til tveggja ára. Um er að ræða frábæran möguleika fyrir þá sem að vilja taka Háskólabrú með vinnu eða taka aðfaranám á lengri tíma.

Námið er tekið á tveimur árum og er skipulagt eins og fjarnám Háskólabrúar. Háskólabrú með vinnu hefst 28. nóvember næstkomandi og er umsóknarfrestur til 20. nóvember. Nánari upplýsingar um námsfyrirkomulagið má finna hér.

Nýtt tækifæri til náms

Hátt í 1.200 einstaklingar hafa lokið námi í Háskólabrú Keilis og hefur námið undanfarin ár markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur, ásamt því að miða kennsluhætti við þarfir fullorðinna nemenda. Miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Skipulag námsins hentar fullorðnum námsmönnum einstaklega vel þar sem kennt er í lotum, nemendur einbeita sér að einum áfanga í einu sem tekur um fimm vikur.

Nýstárlegir kennsluhættir í framsæknu skólaumhverfi

Keilir er leiðandi aðili í vendinámi eða speglaðri kennslu. Með því er átt við að hefðbundinni kennslu er snúið við. Fyrirlestrar og kynningar kennara eru vistuð á netinu og geta nemendur horft á þær eins oft og þeim sýnist og hvar sem þeim sýnist. Nemendur vinna aftur á móti heimavinnuna í skólanum, oft í verkefnum, undir leiðsögn kennara. Kennslustundir í skólanum verða fyrir vikið frábrugðnar hefðbundinni kennslu. 

Þar sem þetta form hefur verið reynt virðist lærdómurinn verða lifandi ferli sem virkjar nemendur á skemmtilegan hátt. Nám er alltaf á ábyrgð nemenda og undirbúningur fyrir verkefnatímana í skólanum er nauðsynlegur til þess að vinnan í skólanum nýtist á virkan hátt.