Fara í efni

Staðnám Háskólabrúar: Skólasetning og nýnemadagur

Skólasetning í staðnámi Háskólabrúar verður haldinn í aðalbyggingu Keilis að Grænásbraut 910 á Ásbrú í Reykjanesbæ fimmtudaginn 10. ágúst kl. 13:00. Nýnemadagur verður föstudaginn 11. ágúst kl. 09:00 - 16:00. Nám hefst samkvæmt stundatöflu mánudaginn 14. ágúst.

Farið verður yfir skipulag skólans, námsins og hópnum hrist saman. Kennarar kynna sína námsgrein, kennsluáætlanir og vinnulag. Mikilvægt er að allir mæti með tölvur sínar með sér þar sem tölvudeildin mun fara yfir helstu atriði varðandi notkun tölva hér við skólann. Þá verður nemendum veitt kennsla og aðgangur á Moodle, kennslukerfi Keilis. Þessi vika hefur reynst nemendum dýrmæt í reynslubankann og góð byrjun á krefjandi og skemmtilegu námi.

Nánari upplýsingar fyrir nýnema í staðnámi Háskólabrúar Keilis