Fara í efni

Útskrift af verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar

Útskriftarhópur Verk- og raun 2014
Útskriftarhópur Verk- og raun 2014

14 nemendur brautskráðust af verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar Keilis við hátíðlega athöfn í Andrews Theater á Ásbrú, föstudaginn 15. ágúst síðastliðinn.

Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri og Soffía Waag Árnadóttir, forstöðumaður Háskólabrúar Keilis fluttu ávörp.Dúx var Þórir Sævar Kristinsson með einkunnina 9,09 og hlaut hann viðurkenningu frá HS Orku. Ræðu útskriftarnema flutti Berglind Sigurþórsdóttir.

Eftir útkskriftina hafa samanlagt 1.892 nemendur útskrifast frá Keili frá stofnun skólans, þar af 1.129 af Háskólabrú.

Myndir frá útskriftarathöfninni