Fara í efni

Skólasetning haustið 2011

Skólasetning Háskólabrúar verður haldin í Keili mánudaginn 22. ágúst, kl. 10:00, en þá hefst fyrsta kennsluvikan.

Í fyrstu vikunni er farið yfir skipulag skólans, námsins og hópnum hrist saman. Kennarar kynna sína námsgrein, kennsluáætlanir og vinnulag. Kynning verður á bókasafninu, aðgengi að bókasafni og meðferð upplýsinga, einnig mun námsráðgjafi kynna þá þjónustu sem er í boði. Mikilvægt er að allir mæti með tölvur sínar með sér þar sem tölvudeildin mun fara yfir helstu atriði varðandi notkun tölva hér við skólann. Þá verður nemendum veitt kennsla og aðgangur á Moodle, kennslukerfi Keilis. Þessi vika hefur reynst nemendum dýrmæt í reynslubankann og góð byrjun á krefjandi og skemmtilegu námi.
 
Hægt er að nálgast upplýsingar fyrir nýnema hérna.