Fara í efni

Mikil fjölgun umsókna í fjarnám Háskólabrúar Keilis

Annað árið í röð fjölgar umsóknum í fjarnám Háskólabrúar Keilis, en nú hafa um þrefalt fleiri umsóknir borist samanborið við sama tíma í fyrra. Stefnir því í metfjölda umsókna í námið sem hefst næst í janúar 2017. 

Háskólabrú Keilis hefur á undanförnum árum markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur, ásamt því að miða kennsluhætti við þarfir fullorðinna nemenda. Að jafnaði leggja rúmlega tvö hundruð einstaklingar stund á aðfaranám að háskólanámi í Keili, þar af rúmlega helmingurinn í fjarnámi.

Fyrsti árgangur Háskólabrúar hóf nám í Keili árið 2007 en síðan þá hafa hátt í 1.500 einstaklingar lokið náminu. Af þeim hafa langflestir haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis og gildir námið meðal annars til inngöngu í allar deildir Háskóla Íslands.

Boðið er upp á að taka Háskólabrú á einu ári í fullu námi annaðhvort í fjarnámi eða staðnámi, eða á tveimur árum í fjarnámi, en það fyrirkomulag hentar vel þeim aðilum sem vilja taka lengri tíma eða vilja stunda námið með vinnu.

Fjarnám Háskólabrúar hefst næst 5. janúar 2017 og er umsóknarfrestur til 8. desember. Fjarnám Háskólabrúar með vinnu (tveggja ára nám) hefst 11. nóvember næstkomandi. Að loknu námi uppfylla nemendur inntökuskilyrði í háskóla og telst námið sambærilegt stúdentsprófi samkvæmt samningi Keilis og Háskóla Íslands. 

Nánari upplýsingar um námið má finna á www.haskolabru.is