Fara í efni

Brautskráning af Verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar

Frá útskrift Verk- og raunvísindadeildar Háskólabrúar Keilis 16. ágúst
Frá útskrift Verk- og raunvísindadeildar Háskólabrúar Keilis 16. ágúst

Keilir brautskráði fimmtán nemendur af Verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar við hátíðlega athöfn á Ásbrú föstudaginn 16. ágúst.

Með útskriftinni hafa alls 153 nemendur lokið Háskólabrú á þessu ári og samtals rétt tæplega 2.000 nemendur frá fyrstu brautskráningu Háskólabrúar Keilis árið 2008. Heildarfjöldi umsókna í Háskólabrú í ár er sambærilegur og undanfarin tvö ár og er þetta þriðja árið í röð þar sem metfjöldi umsókna berst í námið.

Í þessari fyrstu hátíðarræðu sem framkvæmdastjóri Keilis ítrekaði Jóhann Friðrik Friðriksson að ákvörðunin að sækja sér nám að nýju væri mörgum ekki auðveld. Hinsvegar líktist skólinn Keilir að mörgu leyti fjallinu sem hann kennir sig við. „Keilir er ekki hæsta fjall landsins. Það er hvorki torsótt né ókleift. En ef maður er ekki vanur fjallgöngu þarf að hafa fyrir því að komast á topp þess. Með réttum stuðningi og áræðni nemenda er sú ferð hinsvegar greiðari og auðsóttari en margir gera sér grein fyrir.“

Berglind Kristjánsdóttir, forstöðumaður Háskólabrúar, flutti ávarp auk þess sem Páll Ingvi Logason flutti ræðu útskriftarnema. Dúx var Þráinn Óskarsson með 8,97 í meðaleinkunn og fékk hann gjöf frá HS orku og lesbretti frá Keili sem viðurkenningu fyrir góðan námsárangur.

Háskólabrú Keilis í rúman áratug

Keilir hefur boðið upp á aðfaranám til háskóla frá árinu 2007 og hafa á þeim tíma átt sér stað miklar framfarir í kennsluháttum samhliða breyttum þörfum og kröfum nemenda. Nú geta nemendur því valið að sækja Háskólabrú í staðnámi eða fjarnámi, bæði með og án vinnu. Boðið er upp á Háskólabrú í samstarfi við Háskóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir háskólans.

Keilir hefur markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur. Kennsluhættir miða við þarfir fullorðinna nemenda, miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Kannanir í Háskóla Íslands á gengi nýnema hafa sýnt að nemendur sem koma úr Háskólabrú Keilis eru meðal þeirra efstu yfir þá sem telja sig vel undirbúna fyrir háskólanám.
 
Myndir frá útskrift Verk- og raunvísindadeildar Háskólabrúar Keilis 16. ágúst.
Myndir tók Oddgeir Karlsson.