Fara í efni

Útskrift Háskólabrúar á Ásbrú

Útskriftarhópur Háskólabrúar Keilis á Ásbrú
Útskriftarhópur Háskólabrúar Keilis á Ásbrú
Keilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs útskrifaði 132 nemendur af fjórum brautum af við hátíðlega athöfn í Andrews Theater á Ásbrú föstudaginn 5. júní. 
 
Háskólabrú Keilis útskrifaði í allt 40 nemendur úr þremur deildum: Félagsvísinda- og lagadeild; Hugvísindadeild; og Viðskipta- og hagfræðideild. Nemendur Verk- og raunvísindadeildar útskrifast síðan í ágúst. Soffía Waag Árnadóttir, forstöðumaður Háskólabrúar flutti ávarp. Dúx var Haukur Daði Guðmundsson með 9,14 í meðaleinkunn. Fékk hann bók frá Íslandsbanka og spjaldtölvu frá Keili sem viðurkenningu fyrir bestan námsárangur. Kristrún Helga Jóhanssdóttir flutti ræðu útskriftarnema. Með útskriftinni hafa samtals 1.256 nemendur útskrifast úr Háskólabrú Keilis og hafa lang flestir þeirra haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis. 
 
Í allt hafa 2.123 nemendur útskrifast frá Keili síðan hann hóf störf árið 2007. Fjöldi umsókna hefur borist um nám fyrir haustið 2015. Mikil aukning er í atvinnuflugmannsnám í Flugakademíu Keilis auk þess sem fjöldi umsókna hafa borist í leiðsögunám í ævintýraferðamennsku og einkaþjálfaranám Íþróttaakademíu Keilis. Sem fyrr eru flestir umsækjendur um nám í Háskólabrú Keilis, en að jafnaði stunda um tvö hundruð einstaklingar staðnám og fjarnám í Háskólabrú á ári hverju. 
 
Enn er hægt að sækja um nám í flestum deildum Keilis og er hægt að nálgast nánari upplýsingar á www.keilir.net.