Boðið er upp á nám fyrir nemendur Háskólabrú í sumar. Um að ræða þrjá áfanga sem núverandi nemendur geta skráð sig í og lokið í sumar. Námið hentar þeim nemendum sem vilja nýta sumartímann til að flýta fyrir náminu eða minnka álag í haust.
Háskólabrú með undirbúningi - Sumarið 2020
Námið verður í boði fyrir þá nemendur sem vantar fáa áfanga í viðbót til að uppfylla inntökuskilyrði í Háskólabrú Keilis. Ráðgert er að auka framboð á undirbúningsáföngum til þess að veita fleirum möguleika á námsleiðinni.
Að auki er boðið upp á Háskólabrú í staðnámi og fjarnámi bæði með og án vinnu á haustönn 2020.
Við bendum þeim aðilum sem vilja nýta sér úrræðin eða hyggja á nám á Háskólabrú að hafa samband við Keili sem fyrst. Námsráðgjafar okkar og starfsfólk eru til þjónustu reiðubúin.