Fara í efni

Opið hús í Keili 23. mars

Opið hús verður í húsnæði Keilis sem er staðsett á Grænásbraut 910, 262 Reykjanesbæ á milli 17:00 - 19:00 þann 23. mars n.k.

Öll fjögur kennslusvið innan Keilis verða kynnt og skemmtileg dagskrá verður í boði fyrir alla sem vilja kynna sér starfsemina. Bæði nemendur og starfsfólk verða á staðnum til að spjalla við gesti og námsráðgjafar veita leiðbeiningar um val á námi.

Opið hús er frábær upplifun og tækifæri til að kynnast öllu því sem Keilir hefur upp á að bjóða. Hvetjum alla áhugasama að koma í Keili þennan dag.

Hér má sjá dagskrána:

» Leikir og verðlaun

» Fljúgðu í flughermi flugakademíunnar

» Prófaðu green screen í stúdíói

» Taktu upp þitt eigið hlaðvarp

» Hverning verða tölvuleikir til

» Kynntu þér fjölbreytt námsframboð

» Hittu tengiliði úr atvinnulífinu

» Veitingar í boði

Hér má sjá öll kennslusvið innan Keilis:

Flugakademían

Heilsuakademían

Menntaskólinn á Ásbrú

Háskólabrú