Fara í efni

Opið fyrir umsóknir á Háskólaabrú haust 2024

Opið er fyrir umsóknir á Háskólabrú fyrir haustönn 2024. Mikil aðsókn hefur verið í Háskólabrú síðustu ár og hvetjum við áhugasama til þess að senda inn umsókn tímalega. Nám á Háskólabrú hefur gefið fjölda fólks nýtt tækifæri til náms og hafa flestir útskrifaðir nemendur hafið háskólanám að náminu loknu.

Á haustönn er boðið upp nám á Háskólabrú í staðnámi, fjarnámi eða með vinnu á fjórum mismunandi deildum: félagsvísinda- og lagadeild, hugvísindadeild, viðskipta- og hagfræðideild ásamt verk- og raunvísindadeild. Einnig er boðið upp á viðbótarnám við stúdentspróf á verk- og raunvísindadeild sem hentar þeim nemendum sem lokið hafa stúdentsprófi en vilja styrkja sig í raunvísindum.

Þeim sem vantar einingar upp á inntökuskilyrðin til að hefja nám á Háskólabrú Keilis geta sótt undirbúningsáfanga á fjarnámshlaðborði Keilis og hefja nám á Háskólabrú í framhaldinu. Þeir sem hyggjast nýta sér þennan kost þurfa að sækja um tímanlega til þess að nægur tími gefist til að ljúka áföngum áður en nám hefst í vor.

Sækja um nám á Háskólabrú