Fara í efni

Skólasetning í Háskólabrú

Skólasetning í fjarnámi Háskólabrúar Keilis verður fimmtudaginn 4. janúar 2018 kl. 10:00 í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ. Fyrsta staðnámslota verður í kjölfarið 5. - 6. janúar.

Háskólabrú Keilis hefur á undanförnum árum markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur, ásamt því að miða kennsluhætti við þarfir fullorðinna nemenda. Að jafnaði leggja rúmlega tvö hundruð einstaklingar stund á aðfaranám að háskólanámi í Keili, þar af rúmlega helmingurinn í fjarnámi.

Fyrsti árgangur Háskólabrúar hóf nám í Keili árið 2007 en síðan þá hafa yfir 1.500 einstaklingar lokið náminu. Af þeim hafa langflestir haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis og gildir námið meðal annars til inngöngu í allar deildir Háskóla Íslands. 

Boðið er upp á að taka Háskólabrú á einu ári í fullu námi annaðhvort í fjarnámi eða staðnámi, eða á tveimur árum í fjarnámi, en það fyrirkomulag hentar vel þeim aðilum sem vilja taka lengri tíma eða vilja stunda námið með vinnu.