Skólasetning fyrir nýnema Háskólabrúar (bæði í fjarnámi og staðnámi) fer fram á Teams fimmtudaginn 13. ágúst 2020 kl. 10:00.
Hertar sóttvarnarreglur hafa tekið gildi vegna COVID-19 faraldursins. Þær taka á fjölda einstaklinga sem koma saman og miðast nú við 100 manns. Þá er tveggja metra reglan í gildi og er ekki valfrjáls. Líkt og undanfarna mánuði fylgjumst við með framvindu mála og bregðumst við ábendingum yfirvalda. Við munum láta vita ef hertar reglur hafa áhrif á skólahald haustannar.
Breytt skólahald vegna COVID
Vegna fjöldatakmarkanna verður skólasetningin í fjarfundaformi á Teams að þessu sinni. Starfsmenn Háskólabrúar, námsráðgjafar og tæknimenn munu vera til staðar og svara spurningum. Hópefli nýnema fellur því miður niður.
Þá verða allar vinnulotur í ágústmánuði hjá fjarnemum í fjarfundi vegna gildandi reglna um samkomubann.