Fara í efni

Opnunartími nemendaþjónustu um páskana

Senn fer að líða að páskum og því verður þjónustuborð og nemendaþjónusta lokuð frá og með 3.apríl til 11.apríl. Kennsla á flestum brautum hefst að nýju eftir páska þriðjudaginn 11.apríl. Við vekjum þó athygli á því að Fjarnámshlaðborð Keilis er opið alla daga ársins óháð kennslu á brautum í staðnámi. Þeir sem vilja nýta páskadagana til þess að bæta við sig einingum eru hvattir til þess að skoða Fjarnámshlaðborðið nánar. Einnig bendum við á að opið er fyrir skráningar í allar brautir Keilis og önnur námskeið alla daga.

Nánari upplýsingar um Fjarnámshlaðborðið má finna hér Fjarnámshlaðborð Keilis.