Fara í efni

Aðstaða

Flugakademía Íslands leggur áherslu á að veita nemendum gott og nýstárlegt kennsluumhverfi. Skólinn er með bóklega námsaðstöðu á Ásbrú og geta nemendur valið að taka verklega tíma frá Keflavíkur- eða Reykjavíkurflugvelli (RKV).

Skrifstofa

Skrifstofur Flugakademíu Íslands eru staðsettar í aðalbyggingu Keilis að Grænásbraut 910 á Ásbrú í Reykjanesbæ og í verklegri aðstöðu skólans á Reykjavíkurflugvelli.

Opnunartímar þjónustuborðs og skrifstofu

Bókleg námsaðstaða

Bóklegt nám fer fram í aðalbyggingu Keilis. Húsnæði Keilis á Ásbrú hýsir kennslustofur, rannsóknaraðstöðu, stoðþjónustu og skrifstofur skólans. Þar er einnig að finna lesrými, hópvinnuherbergi, kaffistofur og veitingasölu, auk þess sem viðburðir og uppákomur eru reglulega á dagskrá. Byggingin er opin nemendum frá klukkan 07:30 að morgni til 23:00 að kvöldi.

 Verkleg kennsluaðstaða á Keflavíkurflugvelli

Flugkennsla fer fram á Austurhluta Keflavíkurflugvallar. Aðgengi er í gegnum Silfurhliðið svokallaða. Þar fara allir nemendur í gegnum öryggisskoðun og þurfa að hafa eftirfarandi í huga:
 
  • Vera með aðgangspassa að flugvellinum - eða skilríki (ökuskírteini, nafnskírteini eða vegabréf)
  • Vera með akstursleyfi á bifreið sinni - eða fá far hjá starfsmanni Flugakademíunnar
  • Vera ekki með farangur í bifreið sinni - slíkt tefur leitina
Flugafgreiðslan er opin alla virka daga kl. 08:00 - 15:00. Flugkennarar sjá um að hleypa þér inn fyrir/eftir þann tíma.
 

Aðbúnaður í verklegri kennsluaðstöðu

Verklega aðstaðan okkar hefur allt til að bera sem þarf til flugáætlanagerðar og undirbúnings fyrir kennslu. Eftirfarandi atriði eru staðalbúnaður í okkar skóla:

  • Kaffivél
  • Tölva til að ná í veðurupplýsingar og gera flugáætlanir
  • Flugáætlanaborð þegar gerðar eru skriflegar flugáætlanir
  • Kennsluherbergi til fyrir- og eftirflugsumræðu
  • Afgreiðsluborð
  • Flugkennaraherbergi
  • Eldhús
  • Hreinlætisaðstaða
  • Næg bílastæði
  • Næg flugvélastæði

Verkleg kennsluaðstaða á Reykjavíkurflugvelli

Verkleg kennsla fer fram á Reykjavíkurflugvelli, þar sem öll aðstaða er eins og best verður á kosið bæði fyrir kennara og nemendur. Aðstaðan er austanmegin við Reykjavíkurflugvöll. Gengið er beint inn á skrifstofu skólans á annari hæð sem er utan öryggissvæði flugvallarins.

Flugskýli og flugvélar eru innan öryggissvæðis og þurfa nemendur að standast öryggispróf hjá Isavia og öðlast þá aðgangspassa inn á flugvöllinn sjálfan. Flugafgreiðslan er opin frá 08:00 - 15:00.

Aðbúnaður í verklegri kennsluaðstöðu

Verklega aðstaðan okkar hefur allt til að bera sem þarf til flugáætlanagerðar og undirbúnings fyrir kennslu, eftirfarandi atriði eru staðalbúnaður í okkar skóla:

  • Kaffivél
  • Tölva til að ná í veðurupplýsingar og gera flugáætlanir
  • Sími til að hringja í veðurfræðing og flugumferðarstjóra
  • Flugáætlanaborð þegar gerðar eru skriflegar flugáætlanir
  • Kennsluherbergi til fyrir- og eftirflugsumræðu
  • Afgreiðsluborð
  • Flugkennaraherbergi
  • Eldhús
  • Hreinlætisaðstaða
  • Næg bílastæði
  • Næg flugvélastæði
  • 24 klst flugumferðarþjónusta

 Hafa samband