Fara í efni

Lokað fyrir umsóknir í Háskólabrú Keilis

Frá fjölmennustu útskrift Háskólabrúar í sögu Keilis þann 12. júní 2020, en þá brautskráðust samtals…
Frá fjölmennustu útskrift Háskólabrúar í sögu Keilis þann 12. júní 2020, en þá brautskráðust samtals 109 nemendur.

Vegna mikillar aðsóknar í Háskólabrú Keilis hefur verið lokað fyrir umsóknir í námið á haustönn 2020, en opnað hefur verið fyrir skráningu á biðlista. Er þetta í fyrsta skipti sem fullskipað er í námið í sögu skólans.

Umsóknum í námið hefur fjölgað mikið á undanförnum árum og fjölgar þeim nú um ríflega fjórðung á milli ára. Keilir fær úthlutað 180 nemendaígildum á ársgrundvelli fyrir nemendur á Háskólabrú og ljóst að þeim þarf að fjölga til að hægt sé að taka á móti öllum þeim umsækjendum sem uppfylla inntökuskilyrði.

Boðið er upp á Háskólabrú í samstarfi við Háskóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir háskólans. Samtals hafa rétt um tvö þúsund einstaklingar lokið náminu og hefur mikill meirihluti þeirra haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis við góðan orðstír.   

Næst verður boðið upp á Háskólabrú í fjarnámi, bæði með og án vinnu, á vorönn 2021. Umsóknarfrestur er í byrjun desember og hvetjum við áhugasama um að hafa samband við okkur sem fyrst, þar sem búist er við áframhaldandi fjölgun umsókna í námið.

Nánari upplýsingar veitir Berglind Kristjánsdóttir, forstöðukona Háskólabrúar.

Skráning á biðlista Háskólabrúar á haustönn 2020