Húsnæðissvið býður nemendum Keilis og öðrum sem vilja að leigja hagkvæmar íbúðir á Keilisgörðum, bæði tveggja herbergja og herbergi með sameiginlegri eldunar- og hreinlætisaðstöðu. Íbúðirnar eru staðsettar á Keilisbraut á Ásbrú í Reykjanesbæ og í göngufæri frá aðalbyggingu skólans.
Þessi deilda (Íbúð A) | 1 herbergi, 22 m² og sameiginlegt svæði, 18 m²
Íbúðareining með tveimur stökum herbergjum og sameiginlegri eldunaraðstöðu og baðherbergi
Verð: 83.000 kr. á mánuði
Þessi stóra (Íbúð B) | 2 herbergi, 62 m² - Í takmörkuðu magni og því ekki öruggt að sé laust.
Íbúðin er með stofu og eldunaraðstöðu og sér svefnherbergi. Rafmagn og hiti eru innifalin í verði.
Verð: 152.000 kr. á mánuði
Þessi sameinaða (Íbúð C) | 2 herbergi, 62 m² - Valkostur ef íbúð B er ekki í boði.
Íbúðareining með eldhúsi og tveimur stökum herbergjum, leigð sem lítil íbúð og er þá annað herbergið notað sem stofa. Rafmagn og hiti eru innifalin í verði.
Verð: 152.000 á mánuði
Frekari upplýsingar
Skilyrði fyrir úthlutun leiguíbúðar er að viðkomandi sé skráður í nám hjá Keili og er krafist upphæð eins mánaðar í tryggingu sem getur verið í formi greiðslu eða bankaábyrgðar. Íbúar Keilisgarða geta sótt um húsaleigubætur og má nálgast upplýsingar um það ferli hér. Húsnæðissvið sendir alla nýja samninga á rafrænu formi til Húsnæðisstofnunar sé þess óskað.