Fara í efni

Jólakveðja frá Keili

Starfsfólk og kennarar Keilis þakka kærlega fyrir árið sem er að líða. Við óskum nemendum, vinum og viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Skrifstofa Keilis verður lokuð yfir hátíðirnar frá og með 21. desember. Við opnum aftur mánudaginn 4. janúar 2021.

Verkleg aðstaða og afgreiðsla Flugakademíu Íslands verður þó opin á þessum tíma, utan aðfanga-, jóla-, gamlárs-, og nýársdags. Verkleg flugkennsla fer fram samkvæmt bókunum kennara og nema á hátíðisdögum.

Hér fyrir neðan má nálgast nánari upplýsingar um upphaf skólaárs 2021.

1. janúar

Stundartöflur MÁ birtar á Innu

4. janúar

Kennsla hefst í ÍAK einkaþjálfaranámi

 

Kennsla hefst við MÁ samkvæmt stundatöflum í staðnámi

7. janúar

Skólasetning nýnema í fjarnámi Háskólabrúar

11. janúar

Kennsla í ÍAK styrktarþjálfaranámi hefst

 

Kennsla í Flugkennaranámi hefst við Flugakademíu

13. janúar

Námskeið í undirbúningsnámi til inntökuprófs í læknisfræði hefst

14. janúar

Skólasetning í einkaflugmannsnámi Flugakademíunnar

15. janúar

Skólasetning í atvinnuflugnámi Flugakademíunnar

18. janúar

Síðasti dagur töflubreytinga/úrsagnar úr áföngum við MÁ

 

 

 

Upplýsingar um upphaf kennslu í Fótaaðgerðafræði má nálgast hérna.

 

Kennsla deilda í byrjun ársins verður samkvæmt kennslualmanaki.

 

Þurfir þú að ná sambandi við starfsfólk Keilis á þessum tíma má senda erindið á eftirfarandi netföng:

Háskólabrú

Íþróttaakademía

Flugakademía

Menntaskólinn á Ásbrú

Vinnuverndarskóli Íslands

Húsnæðissvið

Kennslusvið

Almenn fyrirspurn

Markaðs- og kynningarmál