Fara í efni

Þjónusta við viðskiptavini

Hvernig komum við fram við viðskiptavini? Markmið flestra ef ekki allra fyrirtækja er að veita góða þjónustu við sína viðskiptavini. Farið er yfir hvernig við þjónustum mismunandi hópa fólks og hvernig best er að tryggja góða upplifun viðskiptavina.

Uppbygging

Námskeiðið byggjast upp á vendinámi. Áður en nám hefst fá nemendur senda fyrirlestra og lesefni sem þeir kynna sér áður en þeir koma í vinnustofu.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Starfsfólk í ferðaþjónustu sem vill auka hæfni sýna og skilning á ferðaþjónustu.  Fyrir fólk sem vill vera en betur í stakk búið til að takast á við verkefni í ferðaþjónustu þegar ferðaþjónustan kemst aftur á flug.

Ávinningur

Á námskeiðinu eru kenndar aðferðir til að auka skilning og gæði í þjónustu við viðskiptavini sem gefur þátttakendum í námskeiðinu aukna hæfni til að veita góða þjónustu. Að áfanganum loknum munu nemendur þekkja helstu aðferðir við þjónustu og kunna að greina á milli krafa mismunandi hópa.

Lengd

Námið er byggt upp í samræmi við aðalnámsskrá framhaldsskóla þar sem ein framhaldsskólaeining samsvarar 18 til 24 klukkustunda vinnu meðalnemanda, það er að segja þriggja daga vinnu nemenda ef gert er ráð fyrir sex til átta klukkustunda vinnu að meðaltali á dag eftir eðli viðfangsefna og afkastagetu nemenda.  Þetta námskeið er samsvarandi 5 framhaldskólaeiningum.  

Verð, nánari upplýsingar og skráning

Námskeiðið kostar 35.000 kr. Innifalið eru öll námsgögn, aðgangur að kennslukerfi og fyrirlestrum, ásamt vinnu í vinnustofum. 

Nánari upplýsingar veitir Þórir Erlingsson, verkefnastjóri Nýsköpunarakademíunar. Áður en námskeiðið hefst verður opnað fyrir aðgang þátttakenda að kennslukerfi og fyrirlestrum á netinu, og er ætlast til að þátttakendur hafi kynnt sér efnið áður en farið verður í vinnustofu.

Skráning