Fara í efni

Námskeið í ábyrgri ferðahegðun með staðlotu á Ítalíu

Námskeiðið fer fram á Reykjanesi og Ítalíu // samsett mynd
Námskeiðið fer fram á Reykjanesi og Ítalíu // samsett mynd

Ertu á aldrinum 18 til 25 ára? Langar þig til að ferðast? Hefurðu áhuga á ferðaþjónustu?

Keilir býður, í samstarfi við Markaðsstofu Reykjaness og Erasmus+, upp á einstakt, hagnýtt námskeið í skipulagningu ferða og ábyrgri ferðahegðun fyrir ungmenni á aldrinum 18-25 ára í haust.

Hagnýtt námskeið í skipulagningu ferða

Um er að ræða fjögurra vikna námskeið í skipulagningu ferða og ábyrgri ferðahegðun, þar sem helmingur námsins fer fram í vettvangsferð á Ítalíu. Þátttakendur munu á verkefnatímanum vinna að skipulagningu ferða með áherslu á Reykjanesið og sækja sérhæfð ferðaþjónustutengd námskeið.

Námskeiðið er liður í samstarfsverkefni Keilis, Markaðsstofu Reykjaness, skóla í bæði Tyrklandi og Ítalíu og Erasmus+, menntaáætlun Evrópusambandsins um ábyrga ferðahegðun.

Tveggja vikna staðlota á Ítalíu

Fyrri hluti námskeiðsins verður kenndur í fjarnámi með nokkrum staðlotum. Hinn helmingur námskeiðsins verður kenndur á Ítalíu í byrjun september sem þátttakendur munu sækja. Ferðin er innifalin í skráningargjöldunum.

Námið fer fram á ensku og hittast nemendur þessara þriggja landa á Ítalíu þar sem ferðast verður um í tvær vikur, fræðst um ferðaþjónustu, unnið að skipulagningu ferða og ábyrga ferðaþjónustu.

Nánari upplýsingar og skráning

Skráningargjald á námskeiðið er 45.000 kr. Innifalið eru námskeið, námsgögn, flug, gisting og uppihald á Ítalíu í tvær vikur, ásamt aðgangur að námskeiðum.

Umsóknarfrestur er til 3. ágúst næstkomandi, en farið verður yfir umsóknir um leið og þær berast. Takmarkaður sætafjöldi er í boði.

Hafa samband

Sækja um