Fara í efni

Vöruþróun í ferðaþjónustu

Frá hugmynd til vöru, margir starfsmenn í ferðaþjónustu fá hugmyndir um nýja vöru eða hvernig megi bæta þá vöru sem þeir er að selja hverju sinni. Ferðaþjónustu þróast lítið ef ekki koma nýjar vörur sama hvort talað er um ferðir, þjónustu eða eiginlega vöru. Farið er yfir ferla sem hægt er að nota til að bæta vöru og þjónustu sem auka ánægju viðskiptavina. 

Uppbygging

Námskeiðið byggjast upp á vendinámi. Þegar nám hefst fá nemendur senda fyrirlestra og lesefni sem þeir kynna sér áður en þeir mæta í vinnustofur.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Starfsfólk í ferðaþjónustu sem vill auka hæfni sýna og skilning á ferðaþjónustu.  Fyrir fólk sem vill vera en betur í stakk búið til að takast á við verkefni í ferðaþjónustu þegar ferðaþjónustan kemst aftur á flug.

Ávinningur

Að áfanganum loknum munu nemendur kunna ferla og unnið að vöruþróunar verkefnum..

Lengd

Námið er byggt upp í samræmi við aðalnámsskrá framhaldsskóla þar sem ein framhaldsskólaeining samsvarar 18 til 24 klukkustunda vinnu meðalnemanda, það er að segja þriggja daga vinnu nemenda ef gert er ráð fyrir sex til átta klukkustunda vinnu að meðaltali á dag eftir eðli viðfangsefna og afkastagetu nemenda.  Þetta námskeið er samsvarandi 4 framhaldskólaeiningum.  

Verð, nánari upplýsingar og skráning

Námskeiðið kostar 35.000 kr. Innifalið eru öll námsgögn, aðgangur að kennslukerfi og fyrirlestrum, ásamt vinnu í vinnustofum. 

Nánari upplýsingar veitir Þórir Erlingsson, verkefnastjóri Nýsköpunarakademíunar. Áður en námskeiðið hefst verður opnað fyrir aðgang þátttakenda að kennslukerfi og fyrirlestrum á netinu, og er ætlast til að þátttakendur hafi kynnt sér efnið áður en farið verður í vinnustofu.

Skráning