Fara í efni

Kynning á atvinnuflugnámi á Sauðárkróki

Vegna aukinna umsvifa Flugakademíu Keilis í Skagafirði, verðum við með opinn kynningarfund á atvinnuflugmannsnámi á Alexandersflugvelli á Sauðárkróki, fimmtudaginn 7. mars kl. 12 - 13.

Á sama tíma munum við skrifa undir samstarfssamning við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra vegna flugnema skólans.

Kjörið tækifæri fyrir áhugasama að kynna sér flugnám í fremstu röð í einum stærsta flugskóla Norðurlanda. Þá verður möguleiki á að skoða flugvélakost skólans og spryja flugkennara um námið. Allir velkomnir.