Fara í efni

Inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði

Námskeiðið gengur út á að koma þátttakendum í gegnum inntökupróf Háskóla Íslands í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði. Námskeiðið var fyrst haldið á vordögum árið 2003 og byggir á góðum grunni síðustu ára.

Undanfarin ár hafa nemendur verið beðnir um að leggja á það dóm, í síðasta tíma námskeiðsins, hvort þeir teldu að námskeiðið hefði aukið líkur þeirra á að komast í gegnum inntökuprófið. Að meðaltali hefur þessi spurning fengið tæplega 10 í einkunn af 10 mögulegum. 

Nánari upplýsingar og skráning

Fjöldi nemenda er takmarkaður og komast þeir fyrstir inn sem fyrstir skrá sig.


Við skráningu á námskeiðið er opnað fyrir rafrænan aðgang að mjög yfirgripsmiklu námsefni. Þeir sem greitt hafa fyrir námskeiðið fá ítarlega handbók námskeiðsins (Biblían). Miðvikudaginn 13. janúar 2021 hefjast fyrirlestrar og stoðtímar sem fara fram vikulega til 14. apríl. Að loknum stúdentsprófum í maí verður að auki 26 tíma fyrirlestrasyrpa um efni inntökuprófsins. 

Nánari upplýsingar námskeiðið, fyrirkomulag og kennara, sem og dagskrá fyrirlestra og stoðtíma má finna á heimasíðunni okkar. Einnig má hafa samband við okkur í síma 578 4000 og á inntokuprof@keilir.net

Þátttökugjald er 72.000 kr. Innifalið er aðgangur að bæði fyrirlestrum og stoðtímum, ásamt rafrænu kennsluefni og ítarlegri útprentaðri handbók. Tekið skal fram að námskeiðið er ekki á vegum Læknadeildar Háskóla Íslands. Athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar og skráningu