Fara í efni

Flugbúðir fyrir ungt fólk sumarið 2019

Flugakademía Keilis býður upp á flugbúðir fyrir ungt fólk og aðra áhugasama um flug. Á námskeiðinu er farið yfir allt það áhugaverðasta og skemmtilegasta sem kennt er í flugtengdum fögum. Þátttakendur fá innsýn inn í áhrif veðurs á flug, hvernig flugvélar eru uppbyggðar og hvernig þær fljúga. Einnig verður kynning á öðrum hliðum flugheimsins til dæmis flugvirkjun og flugumferðastjórn.

Gestafyrirlesarar úr flugtengdum fögum verða á námskeiðinu, svo sem flugmaður sem segir frá daglegu lífi sínu í millilandaflugi, og eru leiðbeinendur flugmenn og kennarar við Flugakademíu Keilis. Farið verður í vettvangsferðir og áhugaverðir flugtengdir hlutir skoðaðir – í mörgum tilfellum eitthvað sem venjulegt fólk upplifir aldrei.

Námskeiðið hentar vel þeim sem hafa brennandi áhuga á flugi og flugtengdum málum, sem og þeim sem hyggja á flugnám í framtíðinni. Allir þátttakendur fá persónulega kynningu á Redbird þjálfunarflughermi Flugakademíu Keilis. 

Sumarnámskeið fyrir 13 ára og eldri 11. - 13. júní 2019

  • Námskeiðið er ætlað einstaklingum 13 ára og eldri
  • Námskeiðið er í þrjá daga, frá þriðjudegi til og með fimmtudags, frá 9:00 - 15:00
  • Innifalið í verðinu er hádegismatur, námsgögn, vettvangsferðir og kynning á þjálfunarflughermi Flugakademíu Keilis. 
  • Frá Reykjavík gengur strætó beint hingað á Ásbrú. Sjá www.straeto.is fyrir nánari upplýsingar um samgöngur
  • Mikilvægt að hafa vegabréf alla dagana til að komast inn á flugverndarsvæði
  • Verð: kr. 37.400
  • Skráning á námskeiðið

Kennslan fer fram í húsnæði Keilis á Ásbrú og vettvangsferðir verða farnar um nágrenni skólans, meðal annars inn á Keflavíkurflugvöll. 

Umsagnir þátttakenda

  • "Frábært og skemmtilegt"
  • "Afskaplega fræðandi og hrikalega skemmtilegt" 
  • "Skemmtileg og góð reynsla" 
  • "Þetta var besta námskeið í heimi" 
  • "Spennandi fyrir flugáhugamenn"
  • "Mjög skemmtilegt og ég mæli með því"
  • "Ein besta upplifun lífs míns"
  • "Ég mæli algjörlega með þessu fyrir fólk sem hefur áhuga á flugi og vill kynnast ýmsum sviðum"
  • "Gargandi snilld. Tær snilld sem þú ættir ekki að lára framhjá þér."
  • "Eitt orð: fluggeggjun"
  • "Frábært námskeið heppnaðist mjög vel, skemmtilegir kennarar og aðstoðarmenn sem gerði námskeiðið létt, þægilegt en samt skilningsríkt og öllu var vel skilað af sér."

Nánari upplýsingar veita Sveinn V. Björgvinsson á netfangið svenni@keilir.net eða í síma 578 1572